Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Ferðaskrifstofur, Hótel, Svefnpokagisting, Bændagisting, Hestaferðir
Vellir, Ölfusi
816, Ölfus
www.eldhestar.is
480-4800
480-4801
26
52

Hestaleigan Eldhestar var stofnuð árið 1986. Markmiðið með stofnun þess var að bjóða bæði innlendum og erlendum ferðamönnum hestaferðir um svæði sem ekki voru aðgengileg á annan hátt. Í upphafi var áhersla lögð á að gefa fólki kost á að upplifa Hengilssvæði og þær mörgu náttúruperlur sem þar er að finna, eins Reykjadal, Marardal, Kattartjarnir svo fátt eitt sé nefnt.
Í dag er dagsferð Eldhesta í Reykjadal ein af vinsælustu hestaferðum landsins. Eldhestar bjóða upp á hestaferðir frá 1 klst og upp í 7 daga ferðir. Allar dagsferðir fyrirtækisins og styttri eru farnar frá Völlum í Ölfusi, sem og lengri. Hins vegar teygja lengri ferðirnar anga sína nánast um land allt. Allar styttri ferðirnar eru ætlaðar jafnt vönum sem óvönum. Sumarið 2004 voru Eldhestar með 232 hross á Völlum, þannig að alltaf eru til hestar við allra hæfi. Athugið að Eldhestar eru staðsettir á Völlum í Ölfusi, einungis í um 30 mínútna akstur frá Reykjavík.
Í júní árið 2002 tóku Eldhestar í notkun lítið sveitahótel. Hótel Eldhestar er búið 26 tveggja manna herbergjum og matsal sem tekur um 70-80 manns. Hótel Eldhestar var fyrsta hótelið á Íslandi til að fá norska umhverfismerkið, Svaninn. Hótel Eldhestar býður upp á þægilegt andrúmsloft, kyrrð og ró sveitasælunnar, en samt aðeins í seilingarfjarlægð frá Reykjavík.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.