Í Friðheimum er boðið uppá faglega sögu- og gangtegundasýningu í skógivöxnu og notalegu umhverfi. Sýningin tekur um 15 mín þar sem rekin er saga og uppruni íslenska hestsins.
Eftir sýninguna er gestum boðið í hesthúsið þar sem er heitt á könnunni og notalegt að klappa hestunum og spjalla við knapana.
Sýningin er tilvalin afþreying fyrir fólk á öllum aldri.
Vinsamlegast hafið samband vegna frekari upplýsinga.