Opnunartími

Allt árið
Upplýsingamiðstöðvar, Sýningar
Hafnarbraut 30
780, Höfn í Hornafirði
478-2665
478-1500

Á Höfn í Hornafirði, þeim stað á landinu, þar sem sjóndeildar-hringurinn er öðru fremur jöklasýn, hefur verið sett upp sýning sem tileinkuð er jöklum landsins, með þann volduga nágranna, Vatnajökul, í hásæti. Lifandi þekking um eðli jökla, áhrif þeirra á umhverfið og sambúð manns og náttúru eru lykilatriði sýningarinnar, sem með hjálp valinkunnra vísindamanna, fræði-manna og listamanna veitir innsýn í efnið. Til sýnis eru fræðsluspjöld í máli og myndum, ljósmyndir, kvikmynd, myndlist, ný og gömul tæki og tól, sem allt tengist jöklum. Sýningin teygir sig um allt sveitarfélagið að merktum stöðum þar sem vert er að skoða ummerki Vatnajökuls. En sjón er sögu ríkari og það er von okkar að gestir sýningarinnar hafi af henni ánægju og gagn.

Á jöklasýningu eru upplýsingar á íslensku og ensku um jökla og sambúð manns og jökuls. Myndefni, kvikmyndir, líkön o.fl.

Opið: 1.maí – 31. sept  10:00 til 17:00 alla daga vikunnar. Frá okt til og með apríl er opið eftir samkomulagi.