Á Hótel Höfðabrekku eru 72 vel búin tveggja manna herbergi með baði, sjónvarpi og þráðlausu neti. Veitingastaðurinn tekur allt að 200 manns í sæti þar sem við bjóðum gestum upp á ljúffengt kvöldverðarhlaðborð yfir sumartímann. Við erum 5 km austan við Vík.
Heitir pottar eru við hótelið þar sem notalegt er slaka á og njóta kyrrðarinnar. Hótel Höfðabrekka er kjörinn staður fyrir starfsmannahópa að halda árshátíðir eða fyrir ráðstefnur. Margar skemmtilegar gönguleiðir eru í fallegu umhverfi hótelsins og í nágrenninu er, t.d, hægt að skella sér í bátsferð á hjólabáti við Dyrhólaey, fara í hestaferðir, þeysa á snjósleða, fara í ísgöngu á Sólheimajökli, skella sér í golf á golfvellinum í Vík eða bara njóta útiverunnar á þessum fallega stað.
-Velkomin á Hótel Höfðabrekku!
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.