Opnunartími

Allt árið
Ferðaskipuleggjendur, Hótel, Tjaldsvæði, Gönguferðir, Hestaferðir, Veiði í ám og vötnum , Sýningar, Setur og menningarhús, Veitingahús
Landsveit
851, Hella
www.leirubakki.is
487-8700
487-6692
18
50

Hótel Leirubakki leggur áherslu á góða og persónulega þjónustu og kappkostar að mæta kröfum hvers og eins.
Mjög falleg og hlýleg setustofa er í hótelinu og heitir pottar við húsvegginn, auk þess sem saunabað og stærri laug, Víkingalaugin, standa gestum til boða.
Veitingahúsið í sal Heklusetursins er í hæsta gæðaflokki og þar fer saman glæsilegur salur og frábært útsýni þar sem Hekla og Búrfell blasa við augum.

Mjög góð aðstaða er til funda- og ráðstefnuhalds og einnig hefur starfsfólk okkar mikla reynslu í að skipuleggja brúðkaupsveislur, óvissuferðir, hvataferðir, ættarmót og hvers kyns samkomur.
Leirubakki er í aðeins 100 km fjarlægð frá Reykjavík á góðum, malbikuðum vegi alla leið. Staðurinn er miðsvæðis á Suðurlandi og flestir sögustaðir og náttúruperlur  þessa landshluta eru í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Leirubakka.

Hótel Leirubakki og Heklusetrið bjóða gesti velkomna allt árið.  Staðurinn er þekktur fyrir mikla náttúrufegurð og gott veður. Glæsilegt útsýni er til allra átta og fátt er betra en að njóta slökunar í heitum laugum staðarins hvort heldur er í miðnætursól á sumrin eða við skin norðurljósa og stjarna að vetrinum.

15. sept 2011 - 15. maí 201216. maí - 14. september 2012
1x1 m. sameiginl. baði
9.700
15.900
1x2 m. sameiginl. baði
12.500
20.900
1x3 m. sameiginl. baði
15.200
25.900
1x4 m. sameiginl. baði
17.800
31.900
4 manna fjölskylduherbergi m. sameiginl. baði
19.300
36.900
5 manna fjölskylduherbergi m. sameiginl. baði
23.800
43.900
6 manna fjölskylduherbergi m. sameiginl. baði
27.700
49.900
1x1 með baði
13.600
22.900
1x2 með baði
16.700
27.900
1x3 með baði
21.900
34.800
Svefnpokapláss
5.700
5.700
Tjaldsvæðið er opið frá 1. júní - 30. september.
Heklusýning um eldfjallið Heklu er opin í Heklusetrinu allt árið.