Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða uppá mikið úrval ævintýraferða um Ísland. Fyrirtækið bíður uppá ferðir sem henta hverjum sem er, fjölskyldum, einstaklingum eða hópum, stórum sem smáum. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa boðið íslenskum sem erlendum ferðamönnum uppá margverðlaunaðar jöklagöngur frá árinu 1994. Jöklagöngurnar eru framkvæmdar bæði á Sólheimajökli og Svínafellsjökli. Útibú Íslenskra Fjallaleiðsögumanna í Skaftafelli er opið frá 1. mars til 31.október á ári hverju. Sérstök jólaopnun í Skaftafelli varir frá 26. desember til 5. janúar, ekki er farið í jöklagöngur á jóladag né nýársdag.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða uppá sívinsælar fjallgöngur á Hvannadalshnúk, Hrútfellstinda og Eyjafjallajökul ásamt fleiri tindum á Suðurlandi. Ferðir á þessa tinda eru kjörnar fyrir starfsmannafélög, vinahópa, fyrirtæki og einstaklinga.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn eru leiðandi fyrirtæki í öllu sem við kemur þjálfun starfsmanna og öryggismálum. Mikill metnaður er lagður í þjálfun og endurmenntun starfsmanna þar sem staðlar þjálfunar eru fengnir frá Nýskjálenska Fjallaleiðsögumanna Sambandinu. En þeir staðlar eiga mjög vel við þær aðstæður sem við búum við á íslenskum jöklum.
Verðlaun og Viðurkenningar:
2006: Frumkvöðlaverðlaun Iceland Air fyrir nýsköpun og þróun á jöklagöngum
2009: Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir umhverfisvitnund og stefnu í umhverfismálum
2010: Starfsmanntaverðlaun Samtaka Ferðaþjónustunnar fyrir menntun starfsmanna og leiðsögumanna
2010: Nýsköpunarverðlaun Samtaka Ferðaþjónustunnar fyrir nýsköpun og þróun á jöklagöngum
Fyrirtækið hefur einnig verið tilnefnt til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2011.
Vinsamlegast hafið samband fyrir ferðir og bókunaruppýsingar.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn – Örugglega á Fjöllum
Ferðir:
Jöklagöngur: Frá Skaftafelli (Svínafellsjökull), Sólheimajökli og Langjökli.
Fjallgöngur: Hvannadalshnúkur, Hrútfjallstindar, Eyjafjallajökull, Hengill, Esjan, Snæfellsjökull, Birnudalstindur, Þverártindsegg og fleiri.
Ísklifur: Sólheimajökull, Skaftafell, ísfossar og námskeið.
Bakpokaferðir: Grænland, Askja-Nýjidalur, Ásbirgi – Mývatn, Frá Strönd til Strandar, Laki – Skaftafell, Laki – Núpstaðarskógur, Eldgjá – Vík, Lónsöræfi, Mývatn – Askja, Núpstaðarskógar – Skaftafell, Nýidalur – Eldgjá, Sérferðir og fleiri bakpokaferðir.
Trússferðir: Um allt landið.
Gönguskíðaferðir: Sprengisandur, Lanmannalaugar, Vatnajökull, Grænland og fleiri staðir.
Grænlandsferðir: Gönguferðir, Fjallgöngur, gönguskíðaferðir og leiðangrar.
Utanlandsferðir: Grænland, Marokkó, Frakkland – Mont Blanc og fleira.
Leiðangrar: Sprengisandur, Vatnajökull, Strönd til Strandar og sérferðir.
Hreyfi- og Fjallgönguhópar: Fjallafólk, Fjallagengið og Brattgengið.
Námskeið: Jöklanámskeið, almenn fjallamennska, ísklifur, fjallaskíðanámskeið, vetrar fjallamennska, sérnámskeið og almenn þjálfun leiðsögumanna.
Hestaferðir: Í samstarfi með Eldhestum.
Hvalaskoðun: Í samstarfi með Eldingu.
Klettaklifur: Hnappavellir og sérferðir.
Sjá einnig Íslandsflakkarar - www.icelandrovers.is
Ferðir:
Jeppaferðir: Dagsferðir, lengri ferðir og leiðangrar.
Dagsferðir: Þórsmörk, Eyjafjallajökull, Landmannalaugar, Hekla, Langjökull, Norðurljós, Gullni Hringurinn og Sérferðir.
Lengri ferðir: Suðurland, hveraferðir, hálendisferðir, landmannalaugar, þórsmörk, Skaftafell og Sérferðir.
Hvataferðir: Á Íslandi, Grænlandi eða jafnvel Frakklandi. Fyrirtæki, samtök og aðrir stórir sem smáir hópar.
Sérferðir: Hópar, einstaklingar, aðstoð við kvikmynda- og þáttagerð.
Gönguferðir, Fjallgöngur og Hellaferðir
Hópa- og starfsmannaferðir frá Reykjavík