Hellisheiðarvirkjun er sýningargluggi fyrir sjálfbæra jarðhitanýtingu Íslendinga. Skoðaðu einstaka margmiðlunarsýningu og njóttu leiðsagnar kynningarfulltrúa í virkjuninni þar sem fjallað er um virkjun jarðhitans á Hengilssvæðinu, jarðfræði og sérþekkingu Íslendinga á sviði jarðvarma.
Stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar er einstakt mannvirki þar sem hægt er að njóta stórkostlegs útsýnis. Frábærar veitingar í Kaffi Kolviðarhóli.
Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun er opin alla daga frá kl. 09:00 – 17:00. Stöðvarhúsið er við hringveg 1, miðja vegu milli Reykjavíkur og Hveragerðis.
Sími: 412 5800, gsm 660 9400 og 660 9401 orkusyn@orkusyn.is