Opnunartími

Allt árið
Sýningar, Setur og menningarhús
Hafnargata 9
825, Stokkseyri
483-1202
895-0020

Draugasetrið er staðsett á þriðju hæð Menningarverstöðvarinnar á Stokkseyri. Gestir safnsins fá að kynnast nokkrum af frægustu draugum íslandssögunnar og upplifa sögurnar um þá í 1000fm völundarhúsi. Hver gestur fær lítinn iPod sem inniheldur 24 rammíslenskar draugasögur og inní safninu sjálfu eru 24 herbergi. Á draugabarnum situr Brennivínsdraugurinn uppi í einu horninu og fylgist með gestum og gangandi. Þorir þú?

Á fyrstu hæð hússins er að finna Álfa,- trölla- og norðurljósasafnið en þar fá gestir að skyggnast inní heim álfa og trölla ásamt því að sjá norðurljósin í allri sinni dýrð í um 200 fm vetrarrríki.

 

 

Opnunartími 1. júní - 31. ágúst
Virkir dagar: Laugardagar: Sunnudagar:
Draugasetrið
13:00-18:00
13:00-18:00 13:00-18:00
Álfa-, trölla- og norðurljósasafnið
10:00-20:00
10:00-20:00 10:00-20:00
1.september – 31.maí: Opnum fyrir einstaklinga og hópa. Nánari upplýsingar í síma 895-0020 eða á draugasetrið@draugasetrid.is