Engin mynd
0
0,

Allstór mýrafláki austan við Þjórsá, umkringdur lágum melöldum. Með Þjórsá er nokkur sandur og rís þar lág alda en annars er allt verið grösugt mýrlendi, með fjölda af tjörnum og pollum. Mýrlendið er vaxið broki og stör en í brekkum og höllum í jöðrum þess er víða vaxið burn og smjörgrasi en loð- og gulvíðirunnar á lækjabökkum. Á sumrum er þar fuglalíf mikið, álftir í hópum, gæsir, endur og ýmsar tegundir vaðfugla. Um verið féll Eyvindarkvísl, komin langt austan af öræfum. Féll hún lengstum í tveimur kvíslum sem sameinuðust ofarlega í verinu. Hefur þeim nú verið veitt um Kvíslaveitu í Þórisvatn.
Um Eyvindarver lá hin forna Sprengisandsleið og rétt við hana, norðarlega í verinu, eru rústir af kofa Fjalla-Eyvindar sem verið er kennt við. Kofinn hefur staðið á lindarbakka, skammt norðan við Eyvindarkvísl. Þar er bersvæði og harla votlent. Lind kemur upp fáa metra frá tóttinni og virðist sem byggt hafi verið yfir hana. Líkast er sem hér hafi verið ein aðaltótt, að mestu hlaðin úr torfi og skipt með milliveggjum. Enn standa um hnéháir veggir eftir af kofarústum Eyvindar.
Tilgátuhúss um íverustað Fjalla – Eyvindar er við Hálendismiðatöðina á Hrauneyjum
Heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1995.

Heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1995.