1
861, Hvolsvöllur

Byggða- og Samgöngusafnið í Skógum. Byggðasafnið í Skógum varðveitir menningararf Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga í atvinnutækjum, í listiðn, í gömlum húsakosti, í bókum, í handritum og skjölum. Í Samgöngusafninu birtist þróun samgangna og tæki á Íslandi á 19. og 20. öld. Um er að ræða safn samgöngutækja, en einnig er saga póstþjónustu, rafvæðingar og fjarskipt rakin. Í júní 2008 opnaði Slysavarnafélagið Landsbjörg í samvinnu við Skógasafn nýja sýningu í Samgöngusafninu sem gerir áttatíu ára sögu björgunarsveitanna í landinu skil. Veitingasala og ferðamannaverslun á staðnum.Opið daglega allt árið um kring: Maí og september: kl. 10- 17 Júní, júlí, ágúst: kl. 9-18:30 Október til apríl: kl. 11 – 16.Byggða og samgöngusafnið á Skógum Heimilisfang : Skógum. Póstnúmer : IS 861. Vegnúmer : 1 GPS : 63°31´35 N 19°29´36 W. Sími : 487-8845 Fax : 487-8848mailto:skogasafn@skogasafn.is http://www.skogasafn.is/