1
801,

Orkuveita Reykjavíkur (www.or.is) aflar og dreifir vistvænni orku á sem hagkvæmastan hátt í sátt við umhverfið. Við tökum mið af skynsamlegri nýtingu orkulinda í samræmi við lög og reglur um umhverfismat. Við vinnum að uppgræðslu lands og friðun dýralífs á umráðasvæðum okkar. Stefna okkar er að sjá viðskiptavinum fyrir ódýrri vistvænni orku sem framleidd er á hagkvæman hátt úr endurnýjanlegum íslenskum orkulindum. Þannig stuðlum við að aukinni notkun hreinnar innlendrar orku og um leið leggjum okkar að mörkum til framfara í landinu.
Starfssvæði Orkuveitu Reykjavíkur hefur stækkað umtalsvert og nær nú til Suður- og Vesturlands auk höfuðborgarsvæðisins.
Á höfuðborgarsvæðinu rekur Orkuveita Reykjavíkur stærstu jarðhitaveitu í heimi en að auki 16 smærri veitur á sunnan- og vestanverðu landinu, frá Hvolsvelli í austri til Grundarfjarðar í vestri.
Orkuveita Reykjavíkur reisir nýja jarðvarmavirkjun til rafmagns- og heitavatnsframleiðslu á sunnanverðu Hengilssvæðinu í Sveitarfélaginu Ölfusi í Árnessýslu. Áætlað er að byggja rafstöð sem framleiðir 300 MWe af rafmagni og varmastöð sem afkastar allt að 400 MWth.

Gestamóttaka Hellisheiðarvirkjunar er opin frá 09:00-18:00 alla daga vikunnar. Þar er hægt að nálgast helstu upplýsingar um framkvæmdir við virkjunina. Einnig eru margvíslegar upplýsingar um Hellisheiðina, sögu, dýralíf og möguleika til útivistar

Framkvæmdir við Nesjavallavirkjun hófust 1987. Í september árið 1990 var orkuverið formlega gangsett. Nesjavallavirkjun framleiðir nú 120 MW af rafmagni og 300 MW í varmaorku, jafngildir 1640 1/sek af 83° C hita. Á Nesjavöllum hafa verið boraðar 25 holur, dýptin er á bilinu 1.000 til 2.200 metrar og mælst hefur allt að 380° C hiti. Meðalhola býr yfir 60 MW orku, sem nægir til hitaveitu fyrir 7500 manns og umframgufa er notuð samtímis til rafmagnsframleiðslu.
Árlega koma þúsundir gesta til Nesjavalla í þeim tilgangi að skoða Nesjavallavirkjun. Þar er glæsileg aðstaða til sýninga á einu helsta verkfræði- og tækniafreki Íslendinga.

Afgreiðslutími Gestamóttöku Nesjavallarvirkjunar
Sumartími: Frá 1. júní til 31. ágúst
Mánudaga-laugardaga: 9:00-17:00
Sunnudaga: 13:00-18:00