Jarðhitasvæði í dalkvos milli brattra fjalla á Landmannaafrétti. Laugarnar eru undir hárri brún Laugahrauns. Eru þar margar uppsprettur, heitar og kaldar, sem safnast í lygnan læk, víða 50º-70ºC heitan við uppgönguaugun.