360
801,

Orkuveita Reykjavíkur (www.or.is) aflar og dreifir vistvænni orku á sem hagkvæmastan hátt í sátt við umhverfið. Við tökum mið af skynsamlegri nýtingu orkulinda í samræmi við lög og reglur um umhverfismat. Við vinnum að uppgræðslu lands og friðun dýralífs á umráðasvæðum okkar. Stefna okkar er að sjá viðskiptavinum fyrir ódýrri vistvænni orku sem framleidd er á hagkvæman hátt úr endurnýjanlegum íslenskum orkulindum. Þannig stuðlum við að aukinni notkun hreinnar innlendrar orku og um leið leggjum okkar að mörkum til framfara í landinu.

Starfssvæði Orkuveitu Reykjavíkur hefur stækkað umtalsvert og nær nú til Suður- og Vesturlands auk höfuðborgarsvæðisins.
Á höfuðborgarsvæðinu rekur Orkuveita Reykjavíkur stærstu jarðhitaveitu í heimi en að auki 16 smærri veitur á sunnan- og vestanverðu landinu, frá Hvolsvelli í austri til Grundarfjarðar í vestri.

Orkuveita Reykjavíkur reisir nýja jarðvarmavirkjun til rafmagns- og heitavatnsframleiðslu á sunnanverðu Hengilssvæðinu í Sveitarfélaginu Ölfusi í Árnessýslu. Áætlað er að byggja rafstöð sem framleiðir 300 MWe af rafmagni og varmastöð sem afkastar allt að 400 MWth.


Framkvæmdir við Nesjavallavirkjun hófust 1987. Í september árið 1990 var orkuverið formlega gangsett. Nesjavallavirkjun framleiðir nú 120 MW af rafmagni og 300 MW í varmaorku, jafngildir 1640 1/sek af 83° C hita. Á Nesjavöllum hafa verið boraðar 25 holur, dýptin er á bilinu 1.000 til 2.200 metrar og mælst hefur allt að 380° C hiti. Meðalhola býr yfir 60 MW orku, sem nægir til hitaveitu fyrir 7500 manns og umframgufa er notuð samtímis til rafmagnsframleiðslu.
Árlega koma þúsundir gesta til Nesjavalla í þeim tilgangi að skoða Nesjavallavirkjun. Þar er glæsileg aðstaða til sýninga á einu helsta verkfræði- og tækniafreki Íslendinga.
 
Afgreiðslutími Gestamóttöku Nesjavallarvirkjunar

Sumartími: Frá 1. júní til 31. ágúst
Mánudaga-laugardaga: 9:00-17:00
Sunnudaga: 13:00-18:00

Vetrartími: 1. september til 30 maí
Mánudaga-laugardaga: Samkvæmt pöntunum
Sunnudaga: Lokað


Gestamóttaka Hellisheiðarvirkjunar
Opin frá 09:00-18:00 alla daga vikunnar.
Þar er hægt að nálgast helstu upplýsingar um framkvæmdir við virkjunina. Einnig eru margvíslegar upplýsingar um Hellisheiðina, sögu, dýralíf og möguleika til útivistar