34
820, Eyrarbakki

Þorpið er endurreist íslenskt sjávarþorp frá aldamótunum 1900 í gamla frystihúsinu á Eyrarbakka. Þorpið mun, ásamt því að sýna byggingarstíl og lifnaðarhætti fólks frá þessum tíma, geyma sögu verkmenntunar, iðnmenntunar og atvinnulífs á Íslandi. Á lifandi og skapandi hátt mun fólki gefast kostur á að hverfa til fortíðar-innar og taka, með beinum hætti, þátt í lífi þorpsbúanna.
Þannig verða tengsl milli kynslóða efld og söguhefðinni viðhaldið þannig að þekking og verkleg kunnátta varðveitist kynslóð fram af kynslóð. 

Aldamótaþorpið sjálft er nú á teikniborðinu, búið er að vinna módel af þorpinu í skalanum 1:20.

Húsin í Þorpinu eru:

Bókabúðin
Bankinn / Pósthúsið
Skraddari / Kjólabúð / hattabúð
Bakaríið / konditorí
Krambúðin
Antikbúðin / skratgripaverslunin
Bóndabærinn (beint frá býli, hannyrðasala)
Reykhúsið (smurbrauð, fiskur, kjöt)
Smiðjan (járnsmíður, söðlasmiður)
Ævintýrahúsin tvö – barnahúsin
Móttökuhúsið (miðasala, minjagripir)
Ölstofan
Skemman (trésmiður)