Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

5 km
30 km
8 km
8 km
30 km
30 km
5 km
20 km
30 km
30 km
30 km
30 km
Gistiheimili, Bændagisting, Veitingahús, Beint frá býli
Mýrar
781, Höfn í Hornafirði
www.brunnholl.is
478-1029
478-1079
20
42

Brunnhóll er gisthús og veitingastaður sem er staðsettur á besta stað undir Vatnajökli og útsýn til jökulsins því stórkostleg. Við erum staðsett um 30 km frá Höfn í Hornafirði í áttina að Skaftafelli. 

Brunnhóll er fjölskylduvænn staður og við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu.

Gistiheimilið er með rúm fyrir meira en 40 manns og flest herbergin eru með sér baðherbergi. Hægt er að fá bæði morgunmat og hádegismat á staðnum.

Leitast er við að bjóða upp á afurðir sem framleiddar eru á býlinu eða í næsta nágrenni, hvort heldur eru mjólkurafurðir, kjöt, grænmeti eða fiskur.  Lögð er áhersla á að hafa ávallt heimabakað brauð á boðstólum og nýbakaðar skonsur og rabbarbarasulta eru einn af föstum liðum á morgunverðarborðinu. Sérstaklega viljum við minna á heimalagaða rjómaísinn Jöklaís, sem framleiddur er og seldur á býlinu.Víðsýnt er úr veitingasalnum.  Salurinn er tvískiptur og tekur hann um 40+ manns í sæti.  Opið er út á skjólgóða verönd þar sem hægt er að njóta stórbrotinnar náttúru og útsýnis um leið og hvers konar veitinga.

Á næsta bæ, Árbæ býr svo næsta kynslóð ásamt fjölda húsdýra og má þar nefna kýr, hestar, hundar og kettir. Gestir geta heimsótt Árbæ og fengið innsýn í daglega störf bænda og þeirra vinnuhætti ásamt því að fræðast um aðstæður á svæðinu.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.