Fosshótel Mosfell er 2/3 stjörnu ferðamannahótel með 35 herbergi með baði og 18 herbergi án baðs. Einnig er þar morgunverðarsalur, setu- og sjónvarpsstofa, aðgangur að interneti og ráðstefnusalur sem hentar mjög vel fyrir minni fundi, fyrirlestra og myndbandssýningar. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.