Opnunartími

01/02 - 15/11

Þjónusta

Gistiheimili, Farfuglaheimili / Hostel, Svefnpokagisting
Gaulverjaskóli
801,
551-0654
8
28

Þjónusta.Svefnpokagisting, einnig útvegað uppábúið ef óskað er.
Aðstaða : Gisting fyrir alls 28 manns í 8 herbergjum 1 til 6 manna, og 3 baðherbergi með sturtu. Matsalur með eldunaraðstöðu fyrir gesti er í sér húsi. Héðan er göngufæri niður að Gaulverjabæjarkirkju og ekki nema 104 metrar yfir í félagsheimili, svo þetta er kjörinn staður fyrir margskonar viðburði t.d brúðkaup, ættarmót, afmæli, fermingarbarnamót, íþróttabúðir, námskeiðahald, fundi og ráðstefnur svo eitthvað sé nefnt.
Morgunmatur fyrir þá sem þess óska og einfaldur kvöldmatur, ss. Kjötsúpa / súpa og brauð.

Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík er 65 km, 13 km sunnan (neðan ) við Selfoss og 10 km austan við Stokkseyri, í hjarta flóans við veg 33, Gaulverjabæjarveginn rétt við hliðina á félagsheimilinu Félagslundi og á móti Gaulverjabæ og kirkju.
Frá Gaulverjaskóla er víðsýnna en á flestum stöðum á Íslandi.
Í næsta nágrenni eru gömlu sjáfarþorpin Stokkseyri og Eyrarbakki, með sína frábæru veitingarstaði, söfn, kajak leigu,stórkostlega fjöru o,f.l og o.fl. (sjá tenglar) Tré og List að Forsæti, hestaleigan að Egilsstöðum (11 km) Sveitabúðin Sóley er að Tungu.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.