Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Bændagisting
Suðursveit
781, Höfn í Hornafirði
846-0641
478-1905
24
48

Ef þú vilt njóta Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi, þjóðgarðsins í Skaftafelli og ferðar upp á Vatnajökul er tilvalið að gista hjá okkur. Við erum nálægt sjónum og rétt undir stórbrotnum fjöllum með fallegu útsýni yfir Öræfajökul.

Gerð í Suðursveit er mitt á milli Skaftafells og Hafnar í Hornafirði.

Gistiheimilið Gerði er aðeins 13 km frá Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi þar sem margar kvikmyndir hafa verið gerðar, þar er opið allt árið um kring. Á Gerði eru 23 herbergi með baði og 12 herbergi án baðs. Herbergin eru eins-, tveggja-, þriggja- og fjögura manna og boðið er upp á bæði uppábúið og svefnpokapláss.
Við bjóðum upp á morgunmat og kvöldmat auk þess að eldunaraðstaða er til staðar.
Það eru skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu og ekki langt í næstu hestaleigu. 

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.