Gljásteinn býður upp á gistingu í fallegum fjallaskálum allt frá Gullfossi og Geysi og inn á Kjöl. Skálarnir eru frábærir gististaðir fyrir stóra eða litla hópa í hvers kyns ferðum á þessu vinsæla svæði á hálendi Íslands.Kjölur og svæðið þar í kring er náttúruperla sem hefur að geyma fjölmargar áhugaverðar gönguleiðir, fallega reiðstíga og þjóðsöguna um Reynistaðabræður og ferð þeirra um Kjalveg hinn forna.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.