Græna kannan er kaffi- og samveruhús íbúa Sólheima og gesta. Þar eru aðeins á boðstólnum drykkir og meðlæti úr lífrænt vottuðu hráefni, þar á meðal góðgæti úr bakaríi, matvinnslu og gróðurhúsi Sólheima. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði kaffihússins, úrval matar og drykkjar var aukið og aðstaða fyrir lestur bóka og tímarita var bætt auk þess sem frír aðgangur er að interneti. Yfir sumarmánuðina er Græna kannan opin alla daga vikunnar, að vetri er opnunartíminn takmarkaður, þó ávallt sé messukaffi að lokinni guðsþjónustu á sunnudögum! Sjá opnunartíma á forsíðu heimasíðu Sólheima.Oft eru uppákomur á kaffihúsinu og má sjá yfirlit yfir komandi atburði í dálknum "á döfinni" á forsíðu heimasíðunnar.Verið velkomin á Grænu könnuna.