Veitinga – og gistihúsið Menam er staðsett að Eyravegi 8 á Selfossi skammt frá bökkum Ölfusár. Menam, sem þýðir ,,Við fljótið”, er thailenskur / alþjóðlegur veitingastaður þar sem aðal áhersla er lögð á fyrsta flokks hráefni og alúðlega þjónustu í notalegu umhverfi. Hjá okkur starfar fólk bæði af thailenskum og íslenskum uppruna sem tryggir það besta sem völ er á í okkar matargerð.Aðalsmerki okkar er að allir réttir eru eldaðir jafn óðum eftir pöntunum til að ferskt hráefnið njóti sín sem best. Þá kappkostum við að nota ekki MSG eða þriðja kryddið í okkar matargerð.
Allt útlit veitingastaðarins er hannað í thailenskum stíl. Staðurinn er skreyttur austurlenskum munum sem hjálpar okkur að ná fram notalegri stemmningu og skapar í raun heila veröld út af fyrir sig.
Á efri hæð hússins er lítið gistiheimili sem rúmar allt að 8 manns. Þar er áhersla lögð á notalegt umhverfi í heimilislegum stíl. Um er að ræða fjögur tveggja manna herbergi.Herbergin eru rúmgóð en hlýleg og á hæðinni er sameiginleg setustofa og baðherbergi. Tilvalið gistirými fyrir litla hópa eða einstaklinga sem vilja heimilislega og þægilega stemmningu.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.