Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Fjallaskálar, Svefnpokagisting, Tjaldsvæði
Flaga
880, Kirkjubæjarklaustur
www.eldgja.is
855-5812
855-5813
0
0
89

Hólaskjól er við Fjallabaksleið nyrðri, um 35 km fráþjóðvegi 1, þegar ekið er upp Skaftártungu. Yfir sumarið er vegurinn fær öllum bílum og engar óbrúaðar ár á leiðinni.

Frá Hólaskjóli eru um 6 km inn í Eldgjá, en skömmu áður en þangað er komið, þarf að fara yfir á sem er óbrúuð. Hún er oft ekki fær nema hærri bílum með drifi á öllum hjólum.

Hólaskjól er við Lambskarðshóla, upp við hrauntungu sem rann þegar Eldgjá gaus, árin 934-940. Þar er friðsælt og umhverfi fagurt, t.d. er aðeins 5 mínútna gangur upp hrauntunguna að fallegum fossi í Syðri-Ófæru, sem er ýmist kallaður Silfurfoss eða Litli Gullfoss.
Í Hólaskjóli er svefnpokapláss fyrir 71 gest í tveggja hæða skála.
Þrjú bjálkahús eru einnig leigð út og geta allt að 6 manns gist í hverju þeirra í kojum. Hægt er að fá aukadýnur á gólf fyrir 2 í viðbót ef þörf krefur.
Einnig er tjaldstæði með salernisaðstöðu og sturtu.
Hestahópar eru velkomnir, góð aðstaða og heysala er á staðnum.

Hestahópar eru velkomnir, góð aðstaða og heysala er á staðnum.

7 km frá Eldgjá.  Eldhús, salerni, sturta, tjaldstæði. Aðstaða fyrir hestamenn.