Gistiheimili, Bændagisting, Dýragarðar og opinn landbúnaður, Sýningar, Veitingahús
781, Höfn í Hornafirði
8
16
Í Hólmi er boðið upp á gistingu í hlýlegu endurgerðu húsi með sex tveggja manna herbergjum. Innanhúss hefur verið sköpuð stemmning bóndabæjar frá árunum 1960-‘70 þar sem innréttingar og húsmunir eru frá þeim tíma. Í húsinu er eldunaraðstaða (einungis á veturna) og borðstofa. Á heimili gestgjafa eru einnig tvö tveggja manna herbergi. Boðið er upp á morgun- og kvöldverð ásamt léttum veitingum yfir daginn í veitingaaðstöðu í gömlu huggulegu fjósi á staðnum. Margar góðar gönguleiðir eru í nágrenninu og fjölskrúðugt fuglalíf.
Húsdýragarðurinn í Hólmi er með algengum íslenskum húsdýrum ásamt mörgum öðrum. Í garðinum má finna sauðfé, hesta, kálfa, geitur, grís,ketti, ýmsar kanínutegundir, naggrísi, íslenskar hænur, dverghænur,lynghænur, fashana, ýmsar dúfnategundir, gæsir, og endur. Mismikið er af tegundum eftir því hvaða árstími er. En þegar vorar kviknar líf í garðinum. Þá iðar allt af ungviðum af ýmsum gerðum. Hjólastóla aðgengi er í garðinum.
Ef gist er á vetrartíma er frítt í húsdýragarðinn og gestir geta tekið þátt í að fóðra sauðfé og önnur dýr á bænum.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.