Hótel Geirland býður upp á gistingu í 28 herbergjum með sér baðherbergi og 4 herbergjum með sameiginlegu baðherbergi. Því miður eru ekki sérstök fjölskylduherbergi.
Í nágrenni hótelsins er náttúrufegurð mikil og veðurfar milt. Náttúru- og útivistarunnendum bjóðast nær óþrjótandi möguleikar á lengri eða skemmri ferðum. Starfsfólkið er ávallt reiðubúið að aðstoða ferðalanga við að panta í skipulagðar ferðir.Af áhugaverðum stöðum má nefna Systrastapa, Systravatn, Landsbrotshóla, Fjarðarárgljúfur og Dverghamra. Á sumrin er boðið upp á dagsferðir með leiðsögn á heilmarga staði.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.