Kennileiti Íslands, gamli Geysir, gaf hótelinu nafn og stendur við dyr þess. Haukadalur er einn þekktasti sögustaður okkar íslendinga, bæði til forna sem og í dag. Bóndasonur frá Haukadal, Sigurður Greipsson, stofnaði íþróttaskóla á föðurleifð sinni sem hann rak ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Bjarnadóttur samfellt í fjörutíu og þrjú ár.
Geysissvæðið samstendur af glæsilegum veitingarstað, hóteli, sundlaug með heitu hveravatni, minjagripaverslun, veitingarsölu, Geysisstofu sem er safn með margmiðlunarsýningu, hestaleigu og tjaldsvæði. Einnig er fjórhjólaleiga á staðnum og stutt í ferðir á Langjökul sem og hálendisferðir. Þar af leiðandi er Geysissvæðið tilvalið til ferðalaga þar sem stutt er í fjölda afþreyingar á svæðinu.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.