Hótel Háland er fyrsta og ennþá eina hótelið á hálendi Íslands. Hótel Háland er staðsett rétt við virkjunina í Hrauneyjum. Við erum með fjórar íbúðasvítur og 16 mjög góð herbergi með sjónvarpi og baðherbergi. Hótelið býður upp á fyrsta flokks veitingar með a la carte matseðli, heitan pott, sauna, ljósabekk og ekki síst okkar eigin þyrlupall. Það er góð hugmynd að dveljast og hvílast á hóteli á hálendinu, langt í burtu frá skarkala heimsins, vera samt í sambandi við umheiminn því við bjóðum háhraðanettengingar á öllum herbergjum sem og í ráðstefnusal hótelsins. Njóta um leið fegurðar náttúrunnar, friðarins, frelsisins sem fólgið er í víðáttunni, hlusta á þögnina og njóta kyrrðarinnar.
Vinsamlegast hafið samband til að fá verðlista eða bóka.