Hótel Hlíð er notalegt sveitahótel með öllum nútíma þægindum og er staðsett í Ölfusi.
Á Hótel Hlíð er mjög góð veislu-, funda- og ráðstefnuaðstaða. Hótelið er vinalegt og andrúmloftið sérlega afslappað í fallegu umhverfi. Boðið er upp á 21 herbergi sem rúma allt að 45 manns í gistingu.
Starfsfólk Hótel Hlíðar veitir aðstoð við bókun á ferðum og upplýsingar um gönguleiðir og áhugaverða staði í nágrenni hótelsins.
Allir gestir hafa aðgang að þráðlausu neti og heitum pottum í fallegum garði, þeim að kostnaðarlausu.