Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

8 km
2 km
3 km
30 km
2 km
Hótel, Veitingahús
Vesturbrún 1
845, Flúðir
486-6630
486-6530
32
64

Hótel Flúðir er í einu blómlegasta jarðræktar- og þjónustuhéraði landsins. Þar eru í boði 32 rúmgóð herbergi sem opnast út í garð og kyrrlátt umhverfi fyrir vinnufundi á virkum dögum. Þar má finna rómantíska og endurnærandi stemmningu um helgar með tilheyrandi útivist og afslöppun fyrir þá sem þess óska. Á Hótel Flúðum eru tveir prýðisgóðir veislu-og fundarsalir sem taka allt að 150 manns, auk þess sem gestum bjóðast til afnota 3 salir sem eru steinsnar frá hótelinu.

Á Hótel Flúðum er nýr garður sem tekur mið af nánasta umhverfi Flúða. Í garðinum er eldur, veitingasvæði og heitir pottar. Helstu einkenni garðsins er til að mynda notkun stuðlabergs, holtagrjóts, eld og sígrænan gróður og er hann eini sinnar tegundar hér á Íslandi.
Þykir garðurinn einstaklega vel heppnaður - sjón er sögu ríkari.

Vinsamlegast kynnið ykkur þau tilboð sem í gangi eru á hverjum tíma á heimasíðu hótelsins.