Islandia Hótel Núpar er við hringveginn um 25 km austur af Kirkjubæjarklaustri, staðsett í rómuðu umhverfi í miðju Eystra Eldhrauni og með stórkostlegt útsýni yfir Vatnajökul og Lómagnúp.
Hótelið er opið frá 15. maí til 30.september ár hvert og býður upp á vinalega og góða þjónustu í glæsilegu umhverfi.
Mikil náttúrufegurð er í nágrenni hótelsins og örstutt er í einstakar náttúruperlur. Hvert herbergi hefur stórkostlegt útsýni sem hægt er að njóta kvölds sem morgna.Af áhugaverðum stöðum í nágrenninu má nefna Lakagíga, Systrastapa, Dverghamra, Lómagnúp, Núpsstað, Þjóðgarðinn í Skaftafelli og Jökulsárlón. Á sumrin er boðið uppá dagsferðir með leiðsögn á heilmarga staði.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.