Opnunartími

05/01 - 21/12

Þjónusta

Hótel, Bændagisting, Veitingahús
Suðursveit
781, Höfn í Hornafirði
www.smyrlabjorg.is
478-1074
478-2043
48
90

Smyrlabjörg er velbúið reyklaust sveitahótel, með 48 björtum og vel útbúnum tveggja og þriggja manna herbergjum með baði í flokki IV. Góð aðstaða er fyrir fatlaða. Hárþurrkur/sjónvarp er í öllum herbergjum. Í sameinginlegu rými er sími og þráðlaust internet fyrir þá sem hafa eigin tölvur með sér. Yfir sumartíman er boðið uppá stórglæsilegt kvöldverðahlaðborð, sem saman stendur af tugum heimagerðra rétta sem útbúnir eru úr úrvals hráefni frá Astur Skaftafellssýslu.

Hentug staðsetning fyrir skoðunarferðir um Suðausturland. Jeppa- og snjósleðaferðir á Vatnajökul (2 km), dags- og kvöldferðir. Bátsferðir á Jökulsárlóni. (35 km.) Góðar gönguleiðir í nágrenninu. Miklar líkur eru á því að sjá hreindýr í nágrenninu og frá 20. ágúst til enda febrúar má yfirleitt sjá norðurljós. Smyrlabjörg standa við veg 1.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.  wiFi aðgangur