Opnunartími

Allt árið
Sýningar, Kaffihús
Hellisheiðarvirkjun
www.orkusyn.is
412-5800
660-9401

Hellisheiðarvirkjun er sýningargluggi fyrir sjálfbæra jarðhitanýtingu Íslendinga. Skoðaðu einstaka margmiðlunarsýningu og njóttu leiðsagnar kynningarfulltrúa í virkjuninni þar sem fjallað er um virkjun jarðhitans á Hengilssvæðinu, jarðfræði og sérþekkingu Íslendinga á sviði jarðvarma.

Stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar er einstakt mannvirki þar sem hægt er að njóta stórkostlegs útsýnis.  Frábærar veitingar í Kaffi Kolviðarhóli.

Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun er opin alla daga frá kl. 09:00 – 17:00.  Stöðvarhúsið er við hringveg 1, miðja vegu milli Reykjavíkur og Hveragerðis.

Sími: 412 5800,   gsm 660 9400 og 660 9401    orkusyn@orkusyn.is