Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni er staðsett við Úlfljótsvatn í Grafningi. Þar er fjölskyldutjaldsvæði opið almenningi með góðri aðstöðu fyrir börn og ungmenni. Góðar gönguleiðir eru á svæðinu, bátaleiga og veiði í vatninu. Möguleiki er á innigistingu í svefnpokaplássi.
Tjaldsvæði með góðri aðstöðu fyrir einstaklinga og hópa. Góð hreinlætisaðstaða, sturta, heitt og kalt vatn,þvottaaðstaða, losun ferðasalerna, leikvöllur og rafmagn á mörgum stöðum. Bátaleiga um helgar og stærsti klifurturn landsins.